Stillingar hljóðstyrks og hátalara
Til að auka eða minnka
hljóðstyrkinn þegar símtal er
í gangi eða þú ert að hlusta
á hljóð, skaltu ýta á
eða
.
Innbyggði hátalarinn gerir þér kleift að tala í tækið og
hlusta á það sem viðmælandinn segir úr lítilli fjarlægð án
þess að þurfa að halda á tækinu við eyrað. Hátalarinn er
sjálfkrafa valinn fyrir hljóðforrit.
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur
verið mjög mikill.
Til að kveikja á hátalaranum þegar þú ert með símtal
í gangi skaltu velja
Valkostir
>
Virkja hátalara
.
Til að slökkva á hátalaranum þegar þú ert með símtal
í gangi eða hlustar á tónlist skaltu velja
Valkostir
>
Virkja símtól
.