Nokia N72 - Skilaboð

background image

Skilaboð

53

Skilaboð

Ýttu á

takkann og opnaðu

Skilaboð

. Í

Skilaboð

getur

þú búið til, sent, tekið á móti, skoðað, breytt og skipulagt
textaskilaboð, margmiðlunarskilaboð, tölvupóstskeyti og
sérstök textaskilaboð sem innihalda gögn. Þú getur einnig
tekið við skilaboðum og gögnum um Bluetooth-tengingu,
tekið við vefþjónustuboðum, skilaboðum frá endurvarpa og
sent þjónustuskipanir.

Til athugunar: Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir

geta tekið á móti og birt margmiðlunarskilaboð. Útlit
skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.

Þegar þú opnar

Skilaboð

sérðu

Ný skilaboð

valkostinn auk

lista með möppum:

Innhólf

—inniheldur móttekin skilaboð, utan

tölvupósts og skilaboða frá endurvarpa. Tölvupóstskeyti
eru vistuð í

Pósthólf

.

Mínar möppur

—til að flokka skilaboð í möppur.

Pósthólf

—í

Pósthólf

getur þú tengst við ytra

pósthólfið þitt til að sækja nýjan tölvupóst eða skoða
tölvupóst sem þú hefur áður sótt án tengingar. Sjá
„Tölvupóstur“ á bls. 65.

Uppköst

—inniheldur drög að skilaboðum sem hafa

ekki verið send.

Sendir hlutir

—inniheldur síðustu 20 skilaboðin

sem voru send, fyrir utan þau sem hafa verið send um
Bluetooth-tengingu. Upplýsingar um hvernig á að breyta
fjölda vistaðra skilaboða er að finna í „Annað stillingar“
á bls. 68.

Úthólf

—er tímabundinn geymslustaður skilaboða sem

bíða þess að verða send.

Tilkynningar

—hægt er að biðja símkerfið að

senda skilatilkynningar fyrir send texta- og
margmiðlunarskilaboð (sérþjónusta). Hugsanlega geturðu
ekki fengið skilatilkynningar um margmiðlunarskilaboð
sem hafa verið send á tölvupóstfang.

Ábending! Þegar þú opnar einhverja af þessum

möppum getur þú skipt á milli þeirra með því að ýta
á

eða

.

Til að slá inn og senda þjónustubeiðnir (einnig þekktar sem
USSD-skipanir) til þjónustuveitunnar, líkt og skipanir um
að virkja sérþjónustu, skaltu velja

Valkostir

>

Þjónustuskipun

í aðalskjá

Skilaboð

.

Með

Upplýs. frá endurvarpa

(sérþjónusta) getur þú fengið

skilaboð frá þjónustuveitunni um mismunandi efni, líkt og
veður og umferð. Upplýsingar um hvaða efni eru í boði og
efnisnúmer þeirra fást hjá þjónustuveitunni. Í aðalskjá

background image

Skilaboð

54

Skilaboð

skaltu velja

Valkostir

>

Upplýs. frá endurvarpa

.

Í aðalskjánum getur þú séð stöðu efnis, númer þess,
heiti og hvort það hefur verið merkt sem ( ) til að
fylgja því eftir.