Margmiðlunarskilaboð
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru
opnuð. Hlutir í margmiðlunarboðum geta innihaldið
skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið
á einhvern annan hátt.
Þú getur fengið tilkynningu um að einhver hafi sent
þér margmiðlunarskilaboð sem hafa verið vistuð
í margmiðlunarboðamiðstöðinni. Veldu
Valkostir
>
Sækja
til að koma á pakkagagnatengingu og flytja
skilaboðin í tækið.
Þegar þú opnar margmiðlunarskilaboð (
) getur
þú séð mynd og texta og á sama tíma hlustað á hljóð
í hátalaranum (
birtist ef margmiðlunarskilaboðin
innihalda hljóð). Smelltu með örinni á táknið til að hlusta
á hljóðið.
Til að sjá hvaða hluti margmiðlunarskilaboð innihalda
skaltu opna skilaboðin og velja
Valkostir
>
Hlutir
. Þú
getur valið að vista skrá úr margmiðlunarskilaboðum
í tækinu þínu eða sent hana um Bluetooth (t.d.,
í samhæft tæki).
Veldu
Valkostir
>
Spilun kynningar
til að skoða
mótteknar margmiðlunarkynningar.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé
að afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist
(þ.m.t. hringitóna) og annað efni.