Nokia N72 - Öryggi

background image

Öryggi

Sími og SIM

Beðið um PIN-númer

—Þegar þessi stilling er virk er beðið

um númerið í hvert skipti sem kveikt er á tækinu. Ekki er
víst að öll SIM-kort leyfi að beiðni um PIN-númer sé gerð
óvirk. Sjá „Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir
læsingu“ á bls. 102.

PIN-númer

,

PIN2-númer

og

Númer fyrir læsingu

—Þú

getur breytt númerinu fyrir læsingu auk PIN- og PIN2-
númeranna. Þessi númer geta aðeins innihaldið tölur frá
0 til 9. Sjá „Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir
læsingu“ á bls. 102.

Forðastu að nota aðgangsnúmer sem líkist
neyðarnúmerum, t.d. 112, til að komast hjá því að hringja
óvart í neyðarnúmer.

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum.

Sjálfv. læsingartími

—Hægt er að velja tímann sem líður

þar til tækið læsist sjálfkrafa. Þá er aðeins hægt að opna
tækið aftur með því að slá inn rétt númer fyrir læsingu.
Sláðu inn tímann í mínútum eða veldu

Enginn

til að

óvirkja þennan valkost.

Tækið er opnað með því að slá inn númer fyrir læsingu.

Þegar tækið er læst getur samt verið hægt að hringja
í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

Ábending! Til að læsa tækinu handvirkt skaltu ýta

á

. Listi yfir skipanir opnast. Veldu

Læsa síma

.

Læsa ef skipt um SIM

—Hægt er að láta tækið biðja um

númerið fyrir læsingu þegar óþekkt SIM-kort er sett í það.
Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort sem það
viðurkennir sem kort eigandans.

Lok. notendahópur

—Þú getur tilgreint hóp fólks sem þú

getur hringt í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).

Þegar símtöl eru takmörkuð við lokaða notendahópa getur
samt verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem
er forritað í tækið.

Staðfesta SIM-þjón.

—Þú getur látið tækið birta

staðfestingarboð þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).

Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir læsingu

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum númerum.

PIN-númer—Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað
í leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir yfirleitt
með SIM-kortinu. Ef PIN-númerið er slegið rangt inn
þrisvar sinnum lokast PIN-númerið og það þarf að opna
það áður en hægt er að nota SIM-kortið aftur. Sjá
upplýsingarnar um PUK-númer í þessum hluta.

background image

Verkfæri

103

PIN2-númer—Númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir sumum
SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.

Númer fyrir læsingu (einnig þekkt sem öryggisnúmer)—
Hægt er að nota þetta númer (5 tölustafir) til að læsa
tækinu og hindra þannig að það sé notað í leyfisleysi.
Upphaflega númerið fyrir læsingu er 12345. Breyttu
númerinu fyrir læsingu til að koma í veg fyrir óleyfilega
notkun tækisins. Haltu nýja númerinu leyndu og á
öruggum stað fjarri tækinu.

PUK- og PUK2-númer—Þessi númer (8 tölustafir) eru
nauðsynleg til að breyta lokuðu PIN-númeri eða PIN2-
númeri. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu skaltu
hafa samband við símafyrirtækið sem lét þig fá SIM-kortið.

Vottorðastjórnun

Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð
til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.

Útskýring: Stafræn vottorð eru notuð til að

sannreyna uppruna XHTML- eða WML-síðna og
uppsetts hugbúnaðar. Aðeins er hægt að treysta
þeim ef það er öruggt að þau séu ófölsuð.

Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir
heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Ýttu á

til

að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er til staðar.

Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka, öðru
vefsvæði eða miðlara þar sem trúnaðarupplýsingar eru
sendar. Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna
á vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu og
settur upp.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega

úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og
uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo
að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein
og sér. Vottorðastjórinn verður að vera með rétt,
sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi
fáist. Ef textinn

Vottorð útrunnið

eða

Vottorð ekki

enn gilt

birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal

athuga hvort rétt dag- og tímasetning er á tækinu.

Upplýsingar um vottorð skoðaðar—áreiðanleiki
kannaður

Þú getur aðeins verið viss um rétt kenni miðlara þegar
búið er að kanna undirskrift og gildistíma
miðlaravottorðsins.

Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef
ekki er rétt öryggisvottorð í tækinu.

Til að sjá upplýsingar um vottorð skaltu velja það og síðan

Valkostir

>

Upplýs. um vottorð

. Þegar upplýsingar um

vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins kannað og einhver
af eftirfarandi athugasemdum getur birst:

background image

Verkfæri

104

Vottorði ekki treyst

—Þú hefur ekki valið vottorðið

fyrir nein forrit. Sjá „Trauststillingum breytt“ á bls. 104.

Vottorð útrunnið

—Gildistími vottorðsins er

útrunninn.

Vottorð ekki enn gilt

—Vottorðið hefur ekki enn tekið

gildi.

Vottorð skemmt

—Ekki er hægt að nota vottorðið.

Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.

Trauststillingum breytt

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og að
það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Skrunaðu að heimildarvottorði og veldu

Valkostir

>

Stillingar f. traust

. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem

valið er, birtist yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:

Symbian-uppsetning

:

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.

Internet

:

—Vottorðið getur sannreynt miðlara.

Uppsetning forrita

:

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Java-forrits.

Könnun vott. á netinu

—Veldu að kanna vottorð

á netinu áður en forrit er sett upp.

Veldu

Valkostir

>

Breyta still. f. traust

til að breyta

gildinu.