Nokia N72 - Tengistillingar

background image

Tengistillingar

Gagnatengingar og aðgangsstaðir

Tækið þitt styður pakkagagnatengingar (

), líkt og GPRS í

GSM-símkerfi.

Útskýring: GPRS (General Packet Radio Service)

notar pakkagagnatækni þar sem upplýsingar eru
sendar í litlum gagnapökkum í farsímakerfi.

Til að koma á gagnatengingu verður aðgangsstaður að
hafa verið valinn. Þú getur tilgreint mismunandi gerðir
aðgangsstaða, líkt og:

• MMS-aðgangsstað til að senda og taka við

margmiðlunarskilaboðum,

• Aðgangsstað fyrir Vefforritið til að skoða WML- eða

XHTML-síður

• Internetaðgangsstað (IAP) til að senda og taka við

tölvupósti

Upplýsingar um hvaða gerð af aðgangsstað þarf að nota
fyrir tiltekna þjónustu má fá hjá þjónustuveitu.
Símafyrirtækið þitt eða þjónustuveita gefa upplýsingar um
pakkagagnaþjónustu og áskrift að henni.

Pakkagagnatengingar í GSM-símkerfum

Þegar tækið er notað í GSM-símkerfum er hægt að hafa
margar gagnatengingar í gangi samtímis og aðgangsstaðir
geta deilt gagnatengingu. Upplýsingar um hvernig á að
skoða virkar gagnatengingar er að finna í „Stjórnandi
tenginga“ á bls. 90.

Eftirfarandi vísar geta birst fyrir neðan merkisvísinn, allt
eftir því hvaða símkerfi er í notkun:

GSM-símkerfi, pakkagögn eru möguleg á símkerfinu.

background image

Verkfæri

100

GSM-símkerfi, pakkagagnatenging er virk og verið er

að flytja gögn.

GSM-símkerfi, margar pakkagagnatengingar eru virkar.

GSM-símkerfi, pakkagagnatenging er í bið. (Þetta

getur t.d.gerst þegar símtal er í gangi.)

Móttaka stillinga fyrir aðgangsstaði

Þú getur fengið stillingar fyrir aðgangsstaði
í textaskilaboðum frá þjónustuveitu. Einnig getur verið að
stillingarnar séu forstilltar í tækinu. Sjá „Gögn og
stillingar“ á bls. 59.

Til að búa til nýjan aðgangsstað skaltu ýta á

takkann

og opna

Verkfæri

>

Stillingar

>

Samband

>

Aðgangsstaðir

.

Aðgangsstaðir geta verið varðir (

) af símafyrirtækinu

þínu eða þjónustuveitu. Ekki er hægt að breyta eða eyða
vörðum aðgangsstöðum.

Aðgangsstaðir

Ábending! Sjá einnig „Móttaka stillinga fyrir MMS-

og tölvupóst“, bls. 58, „Tölvupóstur“, bls. 65 og „Vefur
opnaður“, bls. 75.

Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.

Nafn tengingar

—Gefðu tengingunni lýsandi heiti.

Flutningsmáti

—Það veltur á því hvaða gagnatenging

hefur verið valin hvaða reiti er hægt að fylla út . Fylltu út
alla reiti sem eru merktir með

Þarf að skilgr.

eða rauðri

stjörnu. Aðra reiti þarf ekki að fylla út nema þjónustuveitan
hafi tekið það fram.

Til að geta notað gagnatengingu verður símafyrirtækið að
styðja hana og, ef með þarf, virkja hana fyrir SIM-kortið
þitt.

Nafn aðgangsstaðar

(aðeins fyrir pakkagögn)—Heiti

aðgangsstaðarins er nauðsynlegt til að koma á tengingu
við pakkagagnakerfið. Heiti aðgangsstaðarins fæst
uppgefið hjá símafyrirtækinu eða þjónustuveitu.

Notandanafn

—Notandanafn getur verið nauðsynlegt til

að koma á gagnatengingu og það fæst hjá
þjónustuveitunni. Í notandanafninu er oft gerður
greinarmunur á há- og lágstöfum.

Biðja um lykilorð

—Ef þú þarft að slá inn nýtt lykilorð

í hvert skipti sem þú skráir þig inn á miðlara, eða ef þú vilt
ekki vista lykilorðið þitt í tækinu, skaltu velja

.

Lykilorð

—Nauðsynlegt getur verið að nota lykilorð til að

koma á gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá
þjónustuveitunni. Í lykilorðum er oft gerður greinarmunur
á há- og lágstöfum.

Aðgangskort

—Veldu

Venjulegt

eða

Öruggt

.

background image

Verkfæri

101

Heimasíða

—Sláðu inn veffangið eða veffang

skilaboðastöðvar margmiðlunarboða, eftir því hvað þú ert
að setja upp.

Veldu

Valkostir

>

Frekari stillingar

til að breyta

eftirfarandi stillingum:

Gerð símkerfis

—Veldu hvaða internetsamskiptareglur þú

vilt nota:

IPv4 stillingar

eða

IPv6 stillingar

. Aðrar

stillingar velta á því hvaða gerð af símkerfi þú velur.

IP-tala símans

(fyrir IPv4)—Sláðu inn IP-tölu tækisins.

Nafnamiðlarar

—Sláðu inn IP-tölu aðalnafnamiðlarans í

Aðalnafnamiðlari:

. Sláðu svo inn IP-tölu

aukanafnamiðlarans í

Aukanafnamiðlari:

. Vefföngin fást

hjá internetþjónustunni.

Útskýring: Þjónusta lénaheita (DNS - Domain Name

Service) er internetþjónusta sem þýðir nöfn léna eins og
www.nokia.com í IP-tölur líkt og 192.100.124.195.

Veff. proxy-miðlara

—Tilgreindu veffangið fyrir proxy-

miðlarann.

Númer proxy-gáttar

—Sláðu inn gáttarnúmer proxy-

miðlarans.

Pakkagögn

Pakkagagnastillingarnar hafa áhrif á alla aðgangsstaði
sem nota pakkagagnatengingar.

Pakkagagnatenging

—Ef þú velur

Ef samband næst

og ert

á símkerfi sem styður pakkagögn skráir tækið sig á
pakkagagnasímkerfið. Þá er fljótlegra að ræsa virka
pakkagagnatengingu (t.d. til að senda og taka við
tölvupósti). Ef þú velur

Ef með þarf

notar tækið aðeins

pakkagagnatengingu ef þú ræsir forrit eða aðgerð sem
þarfnast hennar. Ef ekkert pakkagagnasamband er til
staðar og þú velur

Ef samband næst

reynir tækið

reglulega að koma á pakkagagnatengingu.

Aðgangsstaður

—Heiti aðgangsstaðarins er nauðsynlegt

ef ætlunin er að nota tækið sem pakkagagnamótald fyrir
tölvu.

Samskipanir

Þú getur fengið öruggar miðlarastillingar frá
símafyrirtækinu þínu eða þjónustuveitu í stillingaboðum.
Einnig geta stillingarnar verið vistaðar á SIM-kortinu þínu.
Í

Samskipanir

geturðu vistað þessar stillingar í tækinu,

skoðað þær eða eytt þeim.