Nokia N72 - Visual Radio

background image

Visual Radio

69

Visual Radio

Ýttu á

og veldu

Radio

. Hægt er að nota forritið sem

venjulegt FM-útvarp til að hlusta á og vista stöðvar. Einnig
er hægt að nota það til að birta uppýsingar á skjánum sem
tengjast því efni sem hlustað er á, ef útvarpsstöðin býður
upp á sjónræna þjónustu (Visual Radio service). Sjónræn
þjónusta byggir á pakkagögnum (sérþjónusta). Hægt er að
hlusta á FM-útvarpið á sama tíma og önnur forrit tækisins
eru notuð.

Til að nota sjónræna þjónustu verður tækið að uppfylla
eftirfarandi skilyrði:

• Kveikt verður að vera á því.
• Gilt SIM-kort verður að vera í því.
• Útvarpsstöðin sem hlustað er á, auk símafyrirtækisins,

verður að styðja þjónustuna.

• Nauðsynlegt er að tilgreina internetaðgangsstað til að

tengjast við Visual Radio miðlara símafyrirtækisins.

• Nauðsynlegt auðkenni verður að vera til staðar fyrir

Visual Radio og kveikt verður að vera á þjónustunni. Sjá
„Vistaðar stöðvar“, á bls. 70.

Ef þú hefur ekki aðgang að Visual Radio þjónustunni er ekki
víst að símafyrirtækið eða útvarpsstöðvarnar þar sem þú
ert styðji þjónustuna. Ekki er víst að sjónræna þjónustan sé
í boði á öllum svæðum og löndum.

Vanalega er hægt að hringja eða svara símtali þegar
hlustað er á útvarpið. Slökkt er á útvarpinu þegar símtal er
í gangi. Þegar símtalinu er lokið getur verið nauðsynlegt
að kveikja handvirkt á útvarpinu aftur.

Útvarpið velur tíðnisviðið út frá landsupplýsingunum sem
það fær frá símkerfinu. Ef þessar upplýsingar eru ekki
til staðar getur verið að tækið biðji þig að tilgreina
staðsetningu þína, eða þá að þú getur valið hana
í stillingum útvarpsins.